About us
Við erum systkini sem ólumst upp á Álftanesi. Þegar við vorum að alast upp var alltaf hús fullt af hundum af mismunandi tegundum. Þær tegundir sem fjölskyldan átti meðan við vorum að alast upp voru tibet spaniel, standard poodle og petit brabacon, afghan hound og auðvitað írskir setterar.
Það var hinsvegar ein tegund sem stóð alltaf upp úr og það var írski setterinn. Fyrsti setterinn okkar kom til okkar árið 1995 og fékk nafnið Hugo. Eftir að hann dó fengum við annan setterinn okkar frá Jónu Th Viðarsdóttir í Cararua ræktun og fékk hann nafnið Rjómabarnið þar sem hann var alltaf svo blíður og andlitsfríður. Þessi hundur var einstakur og uppfyllti allar væntingar sem við höfðum í hundum: fallegur, alltaf glaður og einlægur. Núna er langþráður draumur orðinn að veruleika þar sem við ræktum okkar eigin settera í samstarfi við Cararua og Glitnir.
Guðbjörn og Rebekka búa á Álftanesi og eiga afghaninn Sætu (Kingsleah Golden Topaz) og írska setterinn Íra (Cilleigne Adair). Rebekka ólst upp með Labardor hundum og deilir áhuga Guðbjörns með hundum. Guðbjörn stundar veiðar á rjúpu á hverjum vetri.
Viktoría og Stuart búa með tveimur sonum þeirra á Álftanesi og írska setternum Lúnu (Trawicka Promises Promises). Viktoría er einnig FCI hundadómari.