Íri (Cilleigne Adair)
Íri (Cilleigne Adair) er innfluttur frá Írlandi og kom til okkar í júní 2017. Hann er tryggur, alltaf glaður og áhugasamur. Uppáhaldshlutirnir hans eru að leika við börn (eða hvolpa) og getur kúrað endalaust. Hann er gríðarlega vinnusamur og fljótur að læra en það er hægt að sjá þau trix sem hann hefur lært á instagramsíðunni okkar. Hann hefur einnig lokið grunnnámskeiði í hundafimi. Honum finnst gríðarlega gaman að stela sokkum og stundum finnur hann sokka sem hafa verið týndir lengi.



