|
Jæja þá styttist aldeilis í næstu sýningu en hún verður haldin í reiðhöll Fáks 3-4.mars 2018. Írskur Setter verður sýndur á sunnudeginum undir dómaranum Rui Oliveira frá Portúgal. Hann byrjaði sína hundaferilgöngu árið 1974 þegar hann sýndi Pointer hunda fyrir föður sinn. Hann er núna virtur all rounder dómari og mun dæma alla grúbbu 7. Það verður spennandi að sjá hvað honum finnst um hundana okkar.
Ég fann síðan dóminn frá síðustu sýningu fyrir Lúnu en hann er eftirfarandi: Trawricka Promises Promises, ungliðaflokkur, tík 12m. Avg. body. ex. bone and quality head which needs time to develop more chiselling. Racy in outline with vg rear + croup + tailset. I would prefer a little more angulation in front but she is full of quality! Grade: Ex. BOB Junior, 2 Best bitch and a CC and a Junior CC. Þar sem ég var nemi á sýningunni þá sýndi mamma hana með glæsibrag en því miður þá gleymdist að taka myndir. Reynum að muna það næst!
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorViktoría Jensdóttir Archives
September 2022
Categories |
RSS Feed