|
Það eru ekki allir sem vita það en á Hrafnistu (og sennilega fleiri elliheimilum) þá má fara með hunda í heimsókn. Amman mín, Viktoría er á Hrafnistu DAS í hafnarfirði og við tökum oft lúnu með að heimsækja hana. Það sem mér finnst svo yndislegt þegar ég fer með hana er þegar ég sé andlitið á öllum ljóma þegar ég geng fram hjá. Að sjálfsögðu leyfir lúna þeim að klappa sér og heilsar þeim. Amma mín elskar líka lúnu og Íra og getur hún alls ekki gert upp á milli hundabarnabarnanna 😊
Lúnu finnst líka mjög gaman að hitta afa minn og finnst ekkert betra en að fá smá klapp frá honum :)
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorViktoría Jensdóttir Archives
September 2022
Categories |
RSS Feed