|
Lúna elskar að naga - bein, dót, föt :) nefndu það hún vill naga það. Þar sem hún hefur viðkvæman maga þá hefur hún oft fengið niðurgang ef ég gef henni bein og hún tætir í sig dót og borðar það sem er heldur ekki gott. Kong er eitt af því dóti sem er mjög sterkbyggt. Þetta er úr þykku gúmmí svo það er eiginlega vonlaust að reyna að éta það. Það eru til ýmsar gerðir af kongi en vanalega þá seturu alltaf eitthvað inn í kongið og svo á hundurinn að reyna að ná því út. Ég googlaði hvað gætu verið góðar Kong uppskriftir og var þar m.a. mælt með að bleyta upp í þurrfóðri og setja inn í ef hundur er viðkvæmur í maga. Einnig að sjóða kjúkling, sætar og hitt og þetta. Það voru líka uppskriftir á heimasíðu kong. Ég prófaði síðan að setja barnamat (kalkúnagrítu) í kongið og loka því með hnetusmjöri. Það fór afskaplega vel ofan í mína konu og var hún heillengi að hamast með það til þess að ná öllu út. Ég er síðan að fara að prófa hinar gerðirnar af kongi sem ég á og aðrar fyllingar :)
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorViktoría Jensdóttir Archives
September 2022
Categories |
RSS Feed