Lúna og Íri fengu topp einkunn bæði í augnskoðuninni og mjaðmamyndtökunni sem þau fóru í. Það er mikilvægt í hundarækt að fylgja þeim heilsufarskröfum sem settar eru og fyrir Írska Setterinn þarf að fara í þessi próf. Þegar verið er að leita af hvolpi eða hundi þá er þetta einmitt eitt af því sem skiptir svo miklu máli að fá heilbrigðan hund sem getur sinnt því hlutverki sem hann er ræktaður til þess að gera. Fyrir Írska Setterinn þá þýðir það til dæmis hlaup á veiðum. Enn fremur er gríðarlega mikilvægt að skap sé í lagi og fyrir mér skiptir til dæmis máli að hundar séu ekki of örir og séu góðir heima fyrir. Írski Setterinn þarf ekki að fara í próf til þess að kanna skapgerð en ef svo væri þá myndi Lúna og Íri rúlla því upp eins og öðru þar sem þau eru með er með yndislega skapgerð.
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorViktoría Jensdóttir Archives
September 2022
Categories |

RSS Feed